Einbýlishús með tré fyrir framan.

Umferðarhávaði í Rogaland í Noregi

Rogaland Byggingar

EFLA var fengin til að taka út og skoða umferðarhávaða í Rogaland fylki í Noregi og koma með mótvægisaðgerðir þar sem þörf var á.

Viðskiptavinur
  • Statens Vegvesen
Verktími
  • 2013
Þjónustuþættir
  • Hljóðmælingar
  • Hljóðvistarráðgjöf
  • Umferðarhávaði

Um hvað snýst verkefnið

EFLA skoðaði umferðarhávaða í Rogaland fylki í Noregi fyrir Statens Vegvesen sem er vegagerðin þar í landi.

Hlutverk EFLU

Verkefnið var tvískipt:

  • Fyrst var framkvæmd kortlagning á hávaða vegna umferðar, ásamt grófu mati á lofthljóðeinangrun útveggja og glerja. Í kjölfar þess voru byggingar flokkaðar eftir því hvort líklegt væri að hljóðstig innandyra vegna umferðar færi yfir ákveðin mörk eða ekki.
  • Í öðru lagi voru framkvæmdar skoðanir á byggingunum og útreikningar á væntu hljóðstigi innandyra frá umferð, ásamt hönnun á mótvægisaðgerðum þar sem þörf var á.

Verkefnið var unnið skv. norskri reglugerð: Forurensnings-forskriften FOR-2004-06-01 nr. 931.

Umhverfismál

Verkefnið varðar hávaða frá umferð og aðgerðir vegna hans.

Viltu vita meira?