Jarðgöng í Færeyjum
Hönnun, forritun og gangsetning á umferðarstýringu fyrir stór farartæki í einbreiðum jarðgöngum.
Um hvað snýst verkefnið
Árnarfjarðar- og Hvannasundsgöngin eru einbreið jarðgöng á Borðoy í Færeyjum. Göngin voru byggð á árunum 1964-1967 og eru þau 1680 m og 2120 m löng og með útskotum á um 100 m millibili. Á milli ganganna er stuttur vegkafli í Árnafirði.
Verkefnið fólst í að hanna, forrita og gangsetja umferðarstýringarkerfi fyrir jarðgöngin. Kerfið skynjar og stýrir stærri ökutækjum sem aka um göngin án þess að hafa áhrif á umferð smærri bíla sem þar fara um.
Skynjarar sem nema lengd ökutækja
Við enda ganganna eru skynjarar sem nema lengd ökutækjanna þannig að þegar stórt ökutæki ekur þar um kveiknar á ljósatöflu við hinn enda ganganna sem gefur til kynna að stór bíll sé að fara um göngin. Stórir bílar og bílar með tengivagna þurfa því að stöðva við skiltið en minni bílar aka áfram þar sem þeir geta mætt stórum ökutækjum í útskotum ganganna. Einungis er leyfður akstur tveggja stórra ökutækja samtímis, í hvorum göngum fyrir sig.
Kerfið er byggt fyrir hæðarmælingarkerfi sem gerir viðvart á ljósatöflu ef ökutæki eru of há.
Landsverk og lögreglan geta fjarstýrt lokun fyrir alla umferð í göngunum ef svo ber undir.
Hlutverk EFLU
- Ráðgjafi verkkaupa við framkvæmdina
- Hönnun, forritun og gangsetning á umferðarstýringarkerfi
Ávinningur verkefnis
Öruggari samgöngmáti um göngin. Þá býður kerfið upp á að hægt er að loka göngunum fyrir allri umferð og þannig getur lögreglan stýrt umferðinni.
- 1 / 6
- 2 / 6
- 3 / 6
- 4 / 6
- 5 / 6
- 6 / 6