Deiliskipulag fyrir Hamragarða og Seljalandsfoss
EFLA vann að gerð deiliskipulags fyrir ferðamannasvæðið við Hamragarða og Seljalandsfoss.
Um hvað snýst verkefnið
Ferðamönnum hefur fjölgað mikið á svæðinu undanfarin ár og voru erlendir ferðamenn sem heimsóttu staðinn um 850 þúsund árið 2017. Með deiliskipulaginu er leitast við að skapa aðlaðandi útivistarsvæði, fyrir íbúa og ferðamenn, allan ársins hring. Í samræmi við stefnu sveitarfélagsins um eflingu ferðamennsku þjónar skipulagssvæðið mun stærra svæði. Því þarf að vera til staðar á svæðinu aðstaða og þjónusta til að taka á móti gestum í samræmi við það.
Markmið deiliskipulagsins er að
- Markmið deiliskipulagsins er að
- Bæta aðstöðu ferðamanna en um leið að draga úr álagi á viðkvæm svæði
- Gera öruggari leið gegn um svæðið
- Laga aðkomu og skilgreina bílastæði
- Finna heppilegan stað fyrir upplýsinga- og þjónustumiðstöð
- Byggja upp heildstætt stígakerfi sem dreifir umferð um svæðið
- Bæta aðgengi fyrir alla á sem stærstum hluta svæðisins
Skilgreindir eru fjölbreyttir göngustígar um svæðið og verður hluti stíga færir fyrir hreyfihamlaða. Þá er fyrirhuguð bygging þjónustumiðstöðvar sem þjónar svæðinu í heild. Fyrirkomulag við miðstöðina er hugsað þannig að skjól skapist við húsið til útiveru og að þaðan sé hægt að horfa á Seljalandsfoss.
Við hönnun miðstöðvarinnar skal lögð áhersla á að draga úr áhrifum vegna lýsingar og hugsanlegum glampa frá gleri. Efnis- og litaval veggja og þaks dragi sem mest úr sjónrænum áhrifum byggingarinnar. Torfþak verði á meirihluta hússins.
Hafa þarf í huga að húsið falli vel að landi. Taka þarf tillit til Hamragarðabæjarins við hönnun þjónustumiðstöðvarinnar. Manir, hleðslur og trjágróður verði notað til að draga úr sjónrænum áhrifum byggingar og bílastæða.
Hlutverk EFLU
- Ráðgjafi verkkaupa við gerð deiliskipulags
- Umsjón með tillögugerð ásamt vinnuhópi sveitarfélagsins
- Úrvinnsla og framsetning deiliskpulagstillögu
- Mat á líklegum áhrifum þeirra framkvæmda sem talið var að gætu haft umtalsverð áhrif á umhverfið. Unnið með vinnuhópi sveitarfélagsins
Ávinningur verkefnis
Til að skapa meira svigrúm fyrir ferðamenn og uppbyggingu miðstöðvar þá verður Þórsmerkurvegur færður vestar, nær Markarfljóti.
Sveitarfélagið hefur hug á að efna til hugmyndasamkeppni um þjónustubygginguna, útfærslu bílastæða og annað fyrirkomulag innan lóðarinnar.
- 1 / 2
- 2 / 2