Landmælingar

EFLA býður upp á fjölbreytta landmælingaþjónustu eftir þörfum verkefnis. Við landmælingar notum við alstöðvar, GPS, dróna og þrívíddarskanna.

Loftmynd af Grindavík tekin með dróna.

Alstöðvarmælingar

Alstöðvarmælingar eru gerða þar sem þar sem nákvæmi mælingar er aðal atriði (mm).

  • Innmælingar á byggingum.
  • Vöktun.
  • Staðsetning á byggingum og tækjum.
  • Myndir.
Þrívíddarskanni við virkjun.

GPS mælingar

GPS mælingar eru mikilvægur hluti af landmælingum og tryggja einnig nákvæmni og áreiðanleiki drónagagna.

GPS mælingar eru tilvaldar í t.d.:

  • Landamerkja mælingar
  • Mælingar fyrir hönnun.
  • Staðsetningar á byggingum og landamerkjum.
Alstöðvarmæling við hafið.

Þrívíddarskönnun

Þrívíddarskönnun er nákvæmismæling þar sem smáatriðin eru innmæld. Þrívíddarskönnun er notuð fyrir:

Þrívíddarskönnun af MS Selfossi.

Drónamælingar

  • Drónamælingartækni okkar er stöðugt uppfærð til að tryggja fullkomnustu drónamælingar á Íslandi. Þessi tækni gerir okkur kleift að mæla svæði á km2 mælikvarða með sm nákvæmni. Við bjóðum upp á klassískar myndmælingar, lidarmælingar, hítamyndir, og fjölsviðsmyndir.
  • Myndmælingar nýtast til að búa til mósaíkloftmyndir, hæðarlíkön og þrívíddarlíkön.
  • Lidar skannar yfirborð jarðar með laserpúlsum til að búa til punktský og nákvæm hæðarlíkön. Stóri kosturinn við lidar er að hann smýgur inn í gróðurinn og gerir því mögulegt að framleiða hæðargögn yfir jörðu fyrir neðan. Lidar er einnig gagnlegt við skoðun á raflínum og öðrum mannvirkjum.
  • Með hitamyndavélum getum við búið til mósaíkmyndir af yfirborðshita. Þetta er hægt að nota til að staðsetja leka, einangrunarvandamál, jarðhitavirkni og fleira.
  • Fjölsviðsmyndir eru notad til að greina á milli mismunandi gróðurtegunda og fylgjast með heilbrigði og þróun plantna.
  • Öll drónagögn okkar eru leiðrétt með GPS mælingum.
  • Sé þess óskað getum við framleitt hvers kyns vector- og surfaceskrár (t.d. hæðarlínur, Land/XML, dxf) fyrir CAD og GIS hugbúnað. Ennfremur er hægt að framleiða háupplausnar þrívíddarlíkön af könnunarsvæðum.
Drónamælingar

Hafa samband