Þjóðhagslegur kostnaður fyrirvaralausra raforkutruflana

07.01.2025

Fréttir
Transmission and distribution_img1

EFLA vann skýrslu um þjóðhagslegan kostnað vegna rafmagnstruflana í dreifi- og flutningskerfi raforku fyrir Starfshóp um rekstrartruflanir (START). Þar kemur fram að áætlaður kostnaður af rafmagnsleysi vegna fyrirvaralausra truflana á forgangsorku í flutnings- og dreifikerfi raforku yfir árið 2023 er metinn á um 987 m.kr.

Kostnaður árið 2023

START er starfshópur um rekstrartruflanir í raforkukerfinu. Í skýrslunni, sem starfsfólk EFLU vann, eru einnig birtar tölur um þjóðhagslegan kostnað vegna truflana í afhendingu raforku á árunum 2020 til 2022 ásamt stuðlum til að meta kostnað við raforkuskort fram til ársins 2027.

Á hverju ári valda rafmagnstruflanir miklum kostnaði fyrir þjóðfélagið. Í skýrslunni kemur fram að áætlaður þjóðhagslegur kostnaður raforkunotenda af rafmagnsleysi vegna fyrirvaralausra truflana í flutnings- og dreifikerfum raforku á árinu 2023 er metinn á um 987 m.kr. eða heildarverð um 1.175 kr./kWh og 2.358 kr./kWh ef eingöngu er horft til almennrar forgangsorku.

Þá er einnig fjallað um þá aðferðarfræði sem START hópurinn hefur þróað á undanförnum árum við uppfært mat kostnaðar vegna truflana á afhendingu raforku. Í hinni nýju aðferðafræði útreikninga START hópsins við kostnað vegna raforkuskerðinga er kostnaður reiknaður út frá kostnaðarföllum einstakra notkunarflokka raforku niður á hverjar einstaka fyrirvaralausar raforkuskerðingar sem urðu á árunum 2020 til 2023.

Mynd 1

Mynd: EFLA.

Mynd 2

Mynd: EFLA.

Ytri aðstæður

Kostnaður vegna rafmagnstruflana getur verið mjög breytilegur á milli ára og veltur mikið á ytri aðstæðum eins og veðurfari. Árið 2022 var einstaklega kostnaðarsamt ár að þessu leyti þar sem verulegt óveður var í febrúar það ár sem olli miklu straumleysi víða um land.

Mynd 3

Mynd: EFLA.

Hægt er að nálgast skýrsluna inn á vefsíðunni Truflun.is eða með því að smella á skjalið Kostnaður vegna raforkuskorts.