Þann 16. júlí fór hópur vísindamanna, ásamt sérfræðingum frá verkfræðistofunni EFLU að gosstöðvunum við Litla Hrút.
Sérfræðingar EFLU koma að mælingum við nýjar gosstöðvar
Tilgangur ferðarinnar var að fá nákvæmt líkan af samsetningu gossins og mengunarinnar við gosstöðvarnar og eins að útbúa nákvæmt landmódel af yfirborðinu milli gosstöðvarinnar og Keilis. Þar hefur myndast kvikugangur undir yfirborðinu og leikur grunur á að sigdalur sé að myndast. Ein skýrasta leiðin til að rannsaka svæðið er að fá nákvæmt hæðarlíkan og bera það saman við eldri landlíkön af svæðinu.
Vel samstilltur hópur
Gróðureldar og gasmengun ollu því að Almannavarnir lokuðu svæðinu fimmtudaginn 13. júlí og var svæðið lokað í nokkra daga. Vísindafólkið kom frá Veðurstofu Íslands, Háskóla Íslands, Leeds háskóla, Háskólanum í Nýju-Mexíkó og Universidad Nacional de Costa Rica, Atmospheric Chemistry Lab.
Þessi fjölbreytti hópur safnaði gögnum um samsetningu gosskýsins og reyksins sem kemur frá brennandi mosanum í kringum gosstöðina. Sérfræðingar EFLU sáu um myndmælinguna milli gosstöðvarinnar og Keilis ásamt samskiptum við flugturn. Sérfræðingar frá Svarma aðstoðuðu vísindafólkið frá Leeds háskóla. Verkefnastjórnun og samhæfing var á vegum Veðurstofunnar og Geimvísindastofnunar Íslands.
Hópurinn starfaði bæði austan- og vestanmegin við gosstöðina og gekk verkefnið samkvæmt áætlun, enda var hópurinn einstaklega vel samstilltur og fyllsta öryggis gætt allan tímann.