Nýverið lauk framkvæmdum við byggingu vatnstanks í Úlfarsfellshlíðum í Mosfellsbæ. EFLA kom að öllum áföngum verkefnisins og sá m.a. um forathugun, verkhönnun og landmótun.
Nýr vatnstankur í Mosfellsbæ
Um er að ræða umfangsmikið verkefni, sem var unnið fyrir Mosfellsbæ, og var skipt í nokkra áfanga. Í fyrsti hluta verkefnisins, sem hófst 2016, fór fram forathugun á fýsileika og kerfisgreiningar á vatnsveitukerfi í Mosfellsbæjar, valkostagreining og að lokum val á staðsetningu vatnstanks.
Í framhaldi tók við hönnunarferli verkhönnunar sem EFLA sá um. Framkvæmdinni var skipt upp í þrjá áfanga og var sá fyrsti boðinn út um mitt ár 2019.
Mannvirkið fellur vel inn í landslagið
Mikil áhersla var lögð á að mannvirkið myndi falla vel inn í landslagið og verða fallegur hluti af útvistarsvæðinu í Úlfarsfelli. Við hönnun, frágang og landmótun voru þessi atrið höfð að leiðarljósi en að sama skapi var ávallt hugað að því að skerða nauðsynlega aðkomu að þessu stóra veitumannvirki.
EFLA óskar Mosfellsbæ til hamingju með nýja vatnstankinn sem kemur til með að nýtast ört stækkandi bæjarfélagi og auka rekstraröryggi vatnsveitu Mosfellsbæjar.
- 1 / 4
Fulltrúar EFLU og vatnsveitu Mosfellsbæjar skoða nýja mannvirkið.
- 2 / 4
Mynd tekin á framkvæmdartíma og hér sést inn í vatnstankinn.
- 3 / 4
Mannvirkið er útbúið nýjustu tækjum og stjórnkerfum.
- 4 / 4
Hugað var sérstaklega að allri ásýnd mannvirkisins og að það félli vel inn í landslagið.