Fjármálastjóri EFLU

19.11.2024

Fréttir
Húnsæði EFLU að Lynghálsi 4 úr lofti

EFLA óskar eftir að ráða reynslumikinn einstakling í starf fjármálastjóra. Leitað er að reyndum leiðtoga sem hefur eldmóð til að taka þátt í að leiða félagið inn í nýja og spennandi tíma ásamt öflugu stjórnendateymi.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð á daglegri stjórn fjármála og reksturs, þ.m.t. gerð uppgjöra, greininga og sjóðastýringu
  • Ábyrgð, umsjón og eftirfylgni með áætlanagerð
  • Ábyrgð á bókhaldi og gerð ársreiknings
  • Ábyrgð á reikningagerð og innheimtu
  • Samskipti við kröfuhafa og skuldunauta
  • Samskipti og samvinna við endurskoðanda félagsins
  • Eftirlit, greining og gerð rekstraryfirlita og stjórnendaupplýsinga
  • Samningagerð, s.s. við birgja
  • Þátttaka í stefnumótun og umsjón með þróun og innleiðingu verklags með ábyrgri fjármálastjórn

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Háskólapróf á framhaldsstigi sem nýtist í starfi, t.d. á sviði fjármála, endurskoðunar eða skyldra greina
  • Farsæl og árangursrík reynsla af fjármálastjórnun, áætlanagerð og uppgjörum
  • Leiðtoga- og stjórnunarhæfileikar, framúrskarandi samskiptahæfni og geta til að byggja upp sterka liðsheild
  • Góð greiningarhæfni og gott vald á úrvinnslu og framsetningu fjármálaupplýsinga
  • Reynsla af verkefnastjórnun, innleiðingu breytinga og/eða sjálfvirknivæðingu er æskileg
  • Góð færni í notkun á helstu upplýsingatæknilausnum og áhugi á að tileinka sér nýjungar á því sviði
  • Heiðarleiki, drifkraftur og jákvætt viðmót
  • Metnaður, frumkvæði og sjálfstæði í starfi
  • Góð færni til tjáningar í ræðu og riti á íslensku og ensku

Umsóknarfrestur er til og með 1. desember 2024. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir aðilar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál og þeim svarað að ráðningu lokinni.

Upplýsingar veita Sigríður Svava Sandholt (sigridur@intellecta.is) og Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) í síma: 511-1225.

Sækja um starf.

EFLA er leiðandi þekkingarfyrirtæki sem veitir fjölbreytta þjónustu á öllum helstu sviðum verkfræði, tækni og tengdra greina. EFLA er með svæðisskrifstofur víðsvegar um landið, dóttur- og hlutdeildarfélög erlendis, og í samstæðu fyrirtækisins starfa um 600 starfsmenn.

Öll starfsemi EFLU byggir á teymishugsun á jafningjagrundvelli þar sem samvinna, þátttaka og samábyrgð í sterkri liðsheild eru grundvallaratriði.