Leiðandi í orkuskiptum
EFLA er leiðandi í hönnun innviða fyrir raforkukerfi hérlendis, í Evrópu og víðar. Við erum stolt af því að gegna því mikilvæga hlutverki að tryggja örugga, hagkvæma og skilvirka orkuflutninga við fjölbreyttar aðstæður.

EFLA er alþjóðlegt þekkingarfyrirtæki sem vinnur á öllum sviðum verkfræði og tækni.
Við búum yfir áratuga reynslu og sköpum framsæknar lausnir með nýsköpun að leiðarljósi.
Betri samgöngur hafa auglýst eftir tilboðum í annan hluta framkvæmda við Fossvogsbrú, sem innifelur byggingu sjálfrar brúarinnar.
EFLA veitti styrk úr Samfélagssjóði sínum til stærðfræðikeppninnar Pangea og var að auki með formlega aðkomu að úrslitakeppninni.
Starfsfólk EFLU tók virkan þátt á Samorkuþingi sem haldið var á Akureyri í liðinni viku.
Lausnir byggðar á tæknilegri þekkingu gegna mikilvægu hlutverki við að móta sjálfbæra framtíð. Við hjá EFLU höfum yfir 30 ára reynslu af því að aðstoða viðskiptavini við að stýra rekstri á þann hátt að loftslagsáhrifum og öðrum neikvæðum áhrifum á umhverfið sé haldið í lágmarki. Saman vinnum við að sjálfbærum lausnum.
Nýtt og glæsilegt mannvirki, Hús íslenskunnar, hefur risið við Arngrímsgötu í Reykjavík.